Hoppa yfir valmynd
12.08. 2021 Utanríkisráðuneytið

Íslenskir sérfræðingar í lykilhlutverki við gerð leiðbeininga Alþjóðabankans á sviði jarðhita

Orkusjóður Alþjóðabankans, ESMAP, gaf á dögunum út skýrslu um bestu starfshætti við hagkvæmniathuganir fyrir jarðhitavirkjanir en skýrslan var unnin af íslenskum jarðhitasérfræðingum. Skýrslan inniheldur leiðbeiningar um gerð hagkvæmnirathugana vegna jarðhitavirkjana og spratt upp úr vinnu íslenskra sérfræðinga við undirbúning jarðhitaverkefnis Alþjóðabankans í El Salvador.

Starfsfólk ESMAP, undir stjórn Elínar Hallgrímsdóttur jarðhitasérfræðings, leiddi skýrslugerðina en hún var unnin af teymi íslenskra sérfræðinga af ráðgjafalista utanríkisráðuneytisins á sviði jarðhita. Utanríkisráðuneytið hefur undanfarin ár haldið úti lista yfir ráðgjafa á grundvelli samstarfsyfirlýsingar við ESMAP. Sjálfbær nýting náttúruauðlinda er áherslusvið í íslenskri þróunarsamvinnu og er þróunarframlag Íslands meðal annars veitt með tæknilegri aðstoð á þessum sviðum. Þess má geta að ráðuneytið á í samstarfi við Ríkiskaup þegar kemur að umsýslu og eftirliti með ráðgjafalistum.  

ESMAP styður mótun endurnýjanlegra orkuverkefna í þróunarlöndum sem bankinn og fleiri aðilar fjármagna síðar ef vel tekst til. ESMAP er líka þekkingarsetur um endurnýjanlega orku en Ísland hefur um nokkurra ára skeið fjármagnað stöðu jarðhitasérfræðings hjá ESMAP. 

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

7. Sjálfbær orka
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum