Hoppa yfir valmynd
13.08. 2021 Utanríkisráðuneytið

Ísland á toppi lista OECD yfir stuðning við málefni hafsins

Ljósmynd: gunnisal - mynd

Ísland trónir á toppi lista Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, yfir þau ríki sem verja hlutfallslega mest af sínum framlögum til þróunarsamvinnu í verkefni sem tengjast málefnum hafsins. Málefni sem tengjast sjálfbærni hafs og vatna hafa lengi verið áherslumál Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu en samkvæmt tölfræði OECD styðja 13,5 prósent af framlögum Íslands við þann málaflokk.

Starf Íslands á þessu sviði er margháttað. Í samræmi við þróunarsamvinnustefnu Íslands leitast íslensk stjórnvöld við að stuðla að bættri afkomu og viðnámsþrótti í fátækum samfélögum sem byggja afkomu sína á sjávarútvegi. Meðal annars er unnið að byggðaþróun í strandsamfélögum í Malaví og Úganda ásamt héraðsyfirvöldum þar, og að hreinsun stranda í Síerra Leóne og Líberíu í samstarfi við alþjóðastofnanir. Þá er einnig unnið með Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) við stefnumörkun á alþjóðavettvangi, auk þess sem íslenskir sjávarútvegssérfræðingar veita reglulega ráðgjöf til alþjóðastofnana sem vinna verkefni á þessu sviði. Ísland hefur einnig um árabil virkur þátttakandi í ProBlue sjóði Alþjóðabankans, sem sinnir málefum hafsins og þróun bláa hagkerfisins auk þess að stuðla að því að draga úr mengun í hafi. Loks má nefna að Sjávarútvegsskólinn, sem er hluti af GRÓ, þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, tekur árlega á móti sérfræðingum frá þróunarríkjum sem koma til námsdvalar á Íslandi auk þess að bjóða upp á styttri námskeið í þróunarlöndum. 

 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

14. Líf í vatni
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum