Hoppa yfir valmynd
14.12. 2021 Utanríkisráðuneytið

Menntun barna og bóluefnasamstarf rædd á ráðherrafundi

Ljósmynd: gunnisal - mynd

Þróunarsamvinnuráðherrar Norðurlanda hittust á sérstökum fjarfundi í gær og ræddu mikilvægi menntunar á átaka- og hamfarasvæðum, áhrif heimsfaraldursins á skólagöngu barna í þróunarríkjum og þýðingu skólamáltíða. Framlag Norðurlandanna til bóluefnasamstarfs var ofarlega á baugi og áskoranir tengdar framleiðslu og dreifingu bóluefnanna í þróunarríkjum. Þá voru réttindi fatlaðs fólks í þróunarríkjum og staðan í Eþíópíu einnig til umræðu.

„Það verður að vera forgangsverkefni í alþjóðastarfi að tryggja bóluefni handa heilbrigðisstarfsfólki, öldruðum og öðrum viðkvæmum hópum, líkt og við gerðum þegar við fengum aðgengi að bóluefni fyrir ári síðan,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, meðal annars á fundinum. „Bóluefni er, engu að síður, aðeins hluti af jöfnunni. Við þurfum einnig að horfa til víðtækari eflingar heilbrigðiskerfa. Viðbrögð við heimsfaraldrinum mega ekki vera á kostnað annars bólusetningarstarfs gegn öðrum sjúkdómum eða annarrar heilbrigðisþjónustu.“

Auk Þórdísar Kolbrúnar sóttu fundinn Anne Beathe Tvinnereim, þróunarmálaráðherra Noregs, Flemming Møller Mortensen, þróunarmálaráðherra Danmerkur, Matilda Ernkrans, þróunarmálaráðherra Svíþjóðar og Ville Skinnari, þróunarmálaráðherra Finnlands, sem stýrði fundinum en Finnar fara nú með formennsku í samstarfi Norðurlandanna.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
4. Menntun fyrir öll
16. Friður og réttlæti
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum