Hoppa yfir valmynd
28.02. 2022 Utanríkisráðuneytið

SOS Barnaþorpin: Neyðarsöfnun vegna barna í Úkraínu

Ljósmynd: SOS Barnaþorpin - mynd

SOS Barnaþorpin á Íslandi hófu á föstudag neyðarsöfnun fyrir börn og fjölskyldur þeirra sem eiga um sárt að binda vegna stríðsátakanna í Úkraínu. Stjórn SOS á Íslandi hefur ákveðið að leggja til fimm milljónir króna í neyðaraðstoð til SOS í Úkraínu.

„Ljóst er að SOS Barnaþorpin í Úkraínu munu þurfa mikla aðstoð á næstunni og eru landssamtök SOS víða um heim að undirbúa söfnun. Hjálparstarfsemi SOS í Úkraínu er mjög víðtæk og nær til um um 2.300 einstaklinga, allt í þágu barna og viðbúið er að sú tala muni hækka allverulega á næstu dögum. Áætlað er að á þriðja milljón Úkraínumanna muni leggja á flótta eða verða á vergangi í heimalandi sínu,“ segir Hans Steinar Bjarnason upplýsingafulltrúi samtakanna.

Hann segir að fimmtíu Íslendingar séu SOS-foreldrar barna í Úkraínu en þar eru um 150 börn og ungmenni í umsjá SOS. Þau búa ýmist með SOS fjölskyldum sínum í barnaþorpinu í Brovary eða hjá fósturfjölskyldum á vegum SOS. Að sögn Hans Steinars er ein helsta áskorun stjórnenda SOS í Úkraínu að veita starfsfólki áfallahjálp því margir séu í losti.

Barnaþorp rýmt

„Barnaþorpið í Brovary hefur verið rýmt og 99 börn og fósturforeldrar þeirra í Luhanks héraði í austurhluta landsins hafa verið flutt um set til vestur Úkraínu. Það var gert til að tryggja öryggi þeirra og draga úr hættunni á að þau upplifi ótta og kvíða. Þrjár skrifstofur SOS eru í Luhansk. Það eru 300 fósturfjölskyldur sem leggja allt sitt traust á SOS Banaþorpin og hafa gert síðastliðin átta ár,“ segir Hans Steinar og bætir við að landsskrifstofa SOS í Kænugarði sé starfhæf. 

„Við upplifum okkur algerlega hjálparlaus. Forgangsmál okkar núna er að vernda eins mörg börn og við getum," sagði Serhii Lukashov, framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna í Úkraínu á fundi með öllum landssamtökum SOS.

SOS Barnaþorpin starfa óháð trú og stjórnmálum og það endurspeglast í samskiptum SOS í þessum löndum. „Ég er í nánu sambandi við SOS Barnaþorpin í Rússlandi og Hvíta-Rússlandi. Við erum í sama liði – í liði með börnunum. Við munum halda áfram að vernda börnin fyrir hryllingi stríðsins," sagði Serhii Lukashov.

  • Serhii Lukashov framkvæmdastjóri SOS Barnaþorpanna í Úkraínu. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum