Hoppa yfir valmynd
06.05. 2022 Utanríkisráðuneytið

Aukin framlög til Rauða krossins vegna sendifulltrúa í Úkraínu

Atli Viðar t.h. ásamt Maksym Dotsenko, framkvæmdastjóri Rauða krossins í Úkraínu og aðstoðarframkvæmdastjóri Illya Kletskovskyy. Ljósmynd: Rauði krossinn. - mynd

Utanríkisráðuneytið tilkynnti í gær um viðbótarfjármagn til Rauða krossins, 25 milljónir króna, til að aðstoða félagið við að senda sendifulltrúa á vettvang í Úkraínu. Fulltrúi Rauða krossins á Íslandi átti í gær fund með fulltrúum Rauða krossins í Úkraínu.

„Ástandið í Úkraínu er afar flókið og mismunandi eftir landshlutum og jafnvel innan einstaka landssvæða. Ástandið er augljóslega verst þar sem átök standa yfir og á þeim svæðum þar sem hörð átök hafa átt sér stað” segir Atli Viðar Thorstensen sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða krossins á Íslandi eftir fundinn með Maksym Dotsenko framkvæmdastjóra og Illya Kletskovskyy aðstoðarframkvæmdastjóra Rauða krossins í Úkraínu í gær. Fundurinn var liður í fimm daga vettvangsferð landsfélaga Rauða krossins sem styðja mannúðaraðgerðir á svæðinu, meðal annars til að kanna hvernig landsfélögin geta betur stutt við systurfélag sitt í Úkraínu. 

„Úkraínski Rauði krossinn er að vinna ótrúlegt starf við afar erfiðar aðstæður og hafa til dæmis útvegað og dreift rúmlega 5.400 tonnum af mikilvægri mannúðarastoð til þolenda átakanna með aðstoð Rauða kross hreyfingarinnar. Rauði krossinn gerir hins vegar svo miklu meira en það, til dæmis er heilbrigðiskerfið mjög þanið vegna átakanna og til að bregðast við því hefur Rauði krossinn þjálfað 45.600 einstaklinga í skyndihjálp svo fleiri séu í stakk búnir að veita fyrstu hjálp, þjálfað um 2.000 manns til að veita fræðslu um hvernig varast eigi jarðsprengjur og eru að undirbúa að setja á laggirnar færanleg heilsugæsluteymi til að þjónusta betur þær sjö milljónir flóttamanna sem hafa flúið heimili sín en eru enn innan Úkraínu og að sjálfsögðu aðra landsmenn,” segir Atli Viðar. 

Neyðarsöfnun Rauða krossins vegna átakanna stendur enn yfir. Rauði krossinn þakkar utanríkisráðuneytinu og öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa lagt sitt af mörkum. Nú þegar hafa sjö sendifulltrúar Rauða krossins verið sendir til Úkraínu og nágrannaríkjanna og fleiri eru væntanlegir á vettvang.

„Í heildina hefur úkraínski Rauði krossinn veitt milljón einstaklingum aðstoð frá því átökin hófust. Slíkt væri ekki hægt nema því Rauða kross hreyfingin leggst á eitt við að aðstoða fólk. Á átakasvæðunum höfum við séð hvernig Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) hefur náð að semja um brottflutning óbreyttra borgara frá Mariupol undir afar erfiðum kringumstæðum og vinnur ötullega að því að halda innviðum á borð við spítala og vatnsveitukerfum gangandi. Allt í allt hefur Rauði krossinn í Úkraínu og Alþjóðaráð Rauða krossins aðstoðað um 90.000 óbreytta borgara við að komast frá átakasvæðum til öruggari svæða innan Úkraínu,” segir Atli Viðar. 

„Hjálparstarf innan Úkraínu er mjög umfangsmikið og flókið. Þess væri óskandi að fleiri mannúðarsamtök og stofnanir hefðu tækifæri til að starfa og sinna þolendum átakanna en raun ber vitni. Því miður er Rauði krossinn nánast einu alþjóðlegu mannúðarsamtökin sem geta starfað á svæðinu en þó ekki óhindrað. Starfið er erfitt og til dæmis veldur skortur á eldsneyti því að mannúðarstarf er ekki eins skilvirkt og það gæti verið og við vildum.” 

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum