Hoppa yfir valmynd

Útgefið efni

Útgefið efni á vegum þjóðaröryggisráðs

Mat þjóðaröryggisráðs á ástandi og horfum í þjóðaröryggismálum

Skýrslur þjóðaröryggisráðs um framkvæmd þjóðaröryggisstefnunnar 

Sérstök samráðsverkefni

Ráðstefnur og málþing

2025: Þjóðaröryggi: Íslendingar og hafið

Þjóðaröryggisráð í samvinnu við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands stóð fyrir ráðstefnunni Þjóðaröryggi:,, Íslendingar og hafið“ sem fram fór miðvikudaginn 2. apríl 2025 í Norðurljósasal Hörpu. Á ráðstefnu þjóðaröryggisráðs var lögð áhersla á mikilvægi hafsins fyrir þjóðaröryggi Íslands. Fjallað var um þá þjóðaröryggishagsmuni sem tengjast hafsvæðinu umhverfis Ísland hvort sem þeir lúta að umhverfis- og vistkerfisþáttum,

2023: Alþjóðasamskipti og þjóðaröryggi

Þjóðaröryggisráð í samvinnu við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands stóð fyrir ráðstefnunni Alþjóðasamskipti og þjóðaröryggi sem fram fór þann 22. mars 2023 í Norðurljósasal Hörpu. Á ráðstefnunni var fjallað um alþjóðasamvinnu og áskoranir samtímans og alþjóðasamstarf og víðtækir öryggishagsmunir Íslands.

2020: Samtal um þjóðaröryggi: Fjölþáttaógnir

Þann 27. febrúar 2020 stóð þjóðaröryggisráð fyrir ráðstefnu um fjölþáttaógnir (e. hybrid threats) í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Fjölmargir erlendir og innlendir sérfræðingar tóku þátt. Fjallað var um fjölþáttaógnir í víðum skilningi. Hvað felst í hugtakinu, hvernig getum við aukið varnir gegn fjölþáttaógnum, verndað lýðræðisleg grunngildi og styrkt áfallaþol samfélagsins gagnvart fjölþáttaógnum? Ráðstefnan fór fram á ensku. Þjóðaröryggisráð gekkst fyrir ráðstefnunni í samstarfi við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Verkfræðingafélag Íslands, Blaðamannafélags Íslands, Fjölmiðlanefnd, Kvikmyndamiðstöð, Varðberg, utanríkisráðuneytið, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið, dómsmálaráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið, Persónuvernd, Póst og fjarskiptastofnun, Ríkislögreglustjóra og nefnd um samningu heildarlaga um starfsemi stjórnmálaflokka.

Samantekt frá ráðstefnu þjóðaröryggisráðs um fjölþáttaógnir:

Streymi frá ráðstefnunni:

Opinn fundur 25. september 2019:  Samtal um þjóðaröryggi: Tækni og grunngildi

Á fundinum var fjallað um tækniþróun og áhrif hennar á grunngildi þess samfélags sem við búum í. Rætt var um hvaða möguleika tæknin býður uppá til að hafa áhrif, hverjir nýta sér tæknina, í hvaða tilgangi og með hvaða árangri og loks hvernig er hægt að bregðast við.

Opinn fundur 16. september 2019: ,,Samtal um þjóðaröryggi: Lýðræði og fjölþáttaógnir“

Á fundinum var meðal annars fjallað um falsfréttir, fjölmiðlalæsi, opna lýðræðislega umræðu og samfélagsleg gildi.   

Málþing: „Samtal um fullveldi og þjóðaröryggi“  (23. nóvember 2018)

Síðast uppfært: 25.6.2025
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á hjalp@utn.is

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta