Hoppa yfir valmynd
26. október 2021 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Annar fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2021

Fjármálastöðugleikaráð hélt sinn annan fund á árinu 2021 mánudaginn 25. október. Á fundinum voru rædd staða og horfur í fjármálakerfinu. Þar á meðal var umfjöllun um hækkandi eignaverð, aukinn skuldavöxt heimila, góða arðsemi bankanna og sterka eiginfjár- og lausafjárstöðu þeirra. Fjallað var um eigið fé bankanna og áhrif eiginfjárstöðunnar á útlánagetu þeirra. Þá var rætt um breytingar í smágreiðslumiðlun og í fjármálainnviðum. Á fundinum voru einnig ræddar þær netárásir sem gerðar voru í september sl. og höfðu m.a. áhrif á greiðslukerfi hér á landi

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum