Hoppa yfir valmynd

Efnahagsleg áhrif Covid-19

Á tímum heimsfaraldurs kórónuveiru var unnið að því að greina efnahagsleg áhrif farsóttarinnar á breiðum grundvelli og einnig leggja mat á valkosti í sóttvarnamálum út frá efnahagslegum sjónarmiðum.

Lokaskýrsla fjármála- og efnahagsráðuneytisins um mótvægisaðgerðir stjórnvalda vegna heimsfaraldursins var birt í febrúar 2023.

Nánar um efnahagsaðgerðir vegna kórónuveiru:

Fjármála- og efnahagsráðherra skipaði á árinu 2020 tvo hópa, annan til að tryggja eftirfylgni efnahagsaðgerða vegna faraldursins og hinn til að greina efnahagsleg áhrif valkosta í sóttvarnarmálum.

Skýrslur starfshóps um eftirfylgni efnahagsaðgerða

Starfshópur um eftirfylgni efnahagsaðgerða vegna heimsfaraldurs kórónuveiru vann að söfnun upplýsinga um nýttar fjárhæðir, fjölda þeirra sem fengu stuðning og skiptingu þeirra eftir atvinnustarfsemi, landshlutum, kyni og öðrum upplýsingum eftir því sem við á. Einnig voru fjármunir flokkaðir eftir því hvort þeir töldust til fjárfestinga, reksturs eða tilfærslna.

Hópurinn skilaði eftirfarandi skýrslum:

6. nóvember 2020: Úrræði vegna faraldurs: Nýting heimila og fyrirtækja 
8. janúar 2021: Úrræði vegna faraldurs: 2. Skýrsla starfshóps. Aðgerðir vegna atvinnuástands, fólks í viðkvæmri stöðu og gagnvart sveitarfélögum 
27. apríl 2021: Úrræði vegna faraldurs. 3 skýrsla starfshóps: Nýting heimila og fyrirtækja

Skýrslur starfshóps um efnahagsleg áhrif valkosta í sóttvarnarmálum

Starfshópurinn vann greiningar á efnahagslegum áhrifum valkosta í sóttvarnarmálum, með tilliti til hagsmuna ólíkra samfélagshópa og geira hagkerfisins. Bæði voru metin skammtímaáhrif og áhrif á getu hagkerfisins til þess að taka við sér af krafti að nýju þegar faraldurinn og áhrif hans líða hjá.

Hópurinn vann tvær skýrslur:

15. september 2020: Efnahagsleg áhrif farsóttar og sóttvarna 
15. janúar 2021: Sóttvarnir og efnahagsbati. Lokaskýrsla starfshóps fjármála- og efnahagsráðherra 

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum