Hoppa yfir valmynd

Foreldrar barns

Barn á rétt á að þekkja báða foreldra sína. Móður er skylt að feðra barn sitt ef hún er hvorki í hjúskap né skráðri sambúð og hafi hún ekki gert það innan sex mánaða frá fæðingu þess skorar sýslumaður á hana að gera ráðstafanir til að feðra barnið.

Hvaða þýðingu hefur feðrun barns?

  • Faðir og barn eiga gagnkvæman umgengnisrétt.
  • Faðir er framfærsluskyldur með barni.
  • Barn má bera nafn föður sem kenninafn.
  • Faðir getur farið með forsjá barns.
  • Faðir og barn taka arf eftir hvort annað.

Hvernig verður barn feðrað?

Foreldrar í hjúskap

Ef barn fæðist í hjúskap móður þá telst eiginmaður hennar vera faðir barnsins. Eiginmaðurinn telst einnig vera faðir barnsins ef það fæðist svo stuttu eftir að þau fá skilnað að það sé hugsanlega getið í hjúskapnum.

Foreldrar í skráðri sambúð

Ef móðir er í skráðri sambúð í þjóðskrá við fæðingu barns með manni sem hún lýsir föður þess þá telst hann vera faðir barnsins.

Ef móðir og sá sem hún hefur lýst föður barnsins skrá sig síðar í sambúð þá telst hann faðir barnsins, ef það er enn ófeðrað.

Faðernisviðurkenning

Ef móðir er hvorki í hjúskap né skráðri sambúð við fæðingu barns verður að afla viðurkenningar lýsts föður á faðerni barnsins.

Móðir getur fyllt út sérstakt eyðublað, þar sem hún lýsir ákveðinn mann föður að barni sínu og sent sýslumanni eða mætt til sýslumanns og fyllt út eyðublað þar. Ef hinn lýsti faðir viðurkennir faðerni barnsins undirritar hann yfirlýsingu í viðurvist sýslumanns og verður hann að framvísa persónuskilríkjum með mynd við undirritun. Að því búnu sendir sýslumaður Þjóðskrá tilkynningu um feðrunina.

Stundum óskar lýstur faðir eftir að blóðrannsókn (DNA-rannsókn) fari fram til sönnunar því að hann sé faðir barns áður en hann undirritar faðernisviðurkenningu. Þá er honum gefinn kostur á að undirrita sérstaka yfirlýsingu um að hann óski eftir að blóðrannsóknir fari fram og að hann sé reiðubúinn að greiða þann kostnað sem þær rannsóknir hafi í för með sér, viðurkenni hann faðernið eftir að niðurstaða liggur fyrir eða verði dæmdur faðir barns. Neiti lýstur faðir að greiða kostnað af blóðrannsóknum verður móðir að höfða faðernismál fyrir dómi.

Foreldrar geta einnig fyllt út sérstakt eyðublað til nota við feðrun barns og sent það Þjóðskrá án atbeina sýslumanns. Þá þarf yfirlýsing föður að vera vottuð af tveimur vottum eða lögmanni.

Ef lýstur faðir viðurkennir ekki að vera faðir barns verður móðir að höfða faðernismál fyrir dómi.

Dómsmál

Ef barn verður ekki feðrað eins og að framan greinir verður að höfða faðernismál fyrir dómi. Þá getur verið þörf á að leita aðstoðar lögmanns.

Hver getur höfðað faðernismál?

Barnið sjálft, móðir þess eða maður sem telur sig vera föður barnsins, enda sé barnið þá ófeðrað.

Þegar barnið sjálft höfðar mál gerir lögráðamaður þess það fyrir hönd barnsins. Það er oftast móðir, þar sem hún fer með forsjá barnsins samkvæmt lögum.

Hver greiðir kostnað af máli?

Ef barnið sjálft höfðar málið greiðist kostnaður, sem er ákveðinn af dómara, úr ríkissjóði. Ef móðir eða maður sem telur sig vera föður barns höfða mál þá gilda almennar reglur um málskostnað, þar á meðal um gjafsókn.

Rannsóknir

Dómari getur ákveðið með úrskurði að blóðrannsókn verði gerð á móður, lýstum föður og barni og einnig aðrar sérfræðilegar rannsóknir. Þeim sem í hlut eiga er skylt að hlíta blóðtöku og annarri rannsókn.

Lok máls

Faðernismáli getur lokið með sátt móður og manns sem hún kenndi barnið (dómsátt) eða með dómi. Dómari sendir Þjóðskrá upplýsingar um feðrun barns.

Foreldri barns við tæknifrjóvgun

Kona sem elur barn sem getið er við tæknifrjóvgun telst móðir þess. Það er því ávallt sú kona sem gengur með og elur barn sem er móðir þess, óháð því hvort barn er getið með eggfrumum hennar sjálfrar eða gjafafrumum.

Maki sem samþykkt hefur að tæknifrjóvgun fari fram á eiginkonu sinni samkvæmt ákvæðum laga um tæknifrjóvgun telst foreldri barns sem getið er við tæknifrjóvgunina. Með maka er hér bæði átt við þá sem eru í hjúskap og í sambúð, sem skráð hefur verið í þjóðskrá.

Sjá einnig:

Lög

Þjónusta sýslumanna

Sjá upplýsingar og ýmis eyðublöð sem varða faðerni á vef sýslumanna.

Síðast uppfært: 18.4.2023
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum