Greiðslukerfi og greiðsluþjónusta
Aðeins lítill hluti greiðslumiðlunar á Íslandi fer fram í reiðufé þar sem notkun rafrænna greiðslumiðla er mjög útbreidd. Rafræn greiðslumiðlun er byggð á notkun greiðslu- og uppgjörskerfa sem gjarnan tengjast innbyrðis.
Greiðslukerfi eru mikilvægur fjármálainnviður og öryggi þeirra mikilvægt til að tryggja fjármálastöðuleika. Sérstök lög eru í gildi um öryggi fyrirmæla í greiðslukerfum og verðbréfauppgjörskerfum, nr. 90/1999.
Til kerfislega mikilvægra fjármálainnviða á Íslandi teljast nú stórgreiðslukerfi Seðlabanka Íslands, jöfnunarkerfi Greiðsluveitunnar ehf. og verðbréfauppgjörskerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar, samanber staðfestingu fjármálastöðugleikaráðs.
Nánari umfjöllun um innlenda fjármálainnviði er að finna á vefsvæði Seðlabanka Íslands.
Fjármálamarkaður
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.