Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

09. október 2019 Guðlaugur Þór Þórðarson

Saman til sjálfbærni

Vart líður sá dagur að við fáum ekki nýjar fréttir af þeim miklu umhverfisbreytingum sem eiga sér stað á norðurslóðum vegna hlýnandi loftslags. Ljóst er að þær munu hafa víðtæk áhrif á samfélög á svæðinu og á möguleika þeirra til að vaxa og dafna. Samstarf ríkja á norðurslóðum beinir sjónum að mikilvægi þess að auka þekkingu á umhverfi og samfélögum svæðisins til þess að að auðvelda okkur bregðast við þessum yfirstandandi og yfirvofandi breytingum. 

Sjálfbærni er rauður þráður í formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu. Við leggjum ríka áherslu á samspil samfélags, efnahags og umhverfis. Þekkingaruppbygging síðustu ára í þágu sjálfbærra samfélaga á harðbýlum svæðum varpar ljósi á mikilvægi samvinnu milli stjórnvalda, vísindasamfélags og fyrirtækja. 

Við Íslendingar þekkjum kostina sem felast í slíku samstarfi. Mörg smærri samfélög byggja afkomu sína á uppbyggingu þekkingarfyrirtækja við sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og hafa þannig skapað sinn framtíðargrundvöll. Í formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu nýtum við reynslu íslenskra fyrirtækja á þessum sviðum og höfum komið af stað samstarfsverkefnum aðildarríkja, viðskiptalífs og vísindasamfélags. Ný verkefni ráðsins á sviði bláa lífhagkerfisins og endurnýjanlegrar orku eru til dæmis undir forystu Íslands. 

Betri aðgangur að auðlindum norðurslóða og aukið ríkjasamstarf leiðir til nýrra viðskiptatækifæra á svæðinu. Sterkir innviðir, ekki síst á sviði samgangna, hafa líka lykilþýðingu en öflugt samband opinberra aðila og einkageirans er forsenda uppbyggingar þeirra. Þess vegna leggur Ísland í formennskutíð sinni áherslu á aukið samstarf ríkja og einkafyrirtækja á norðurslóðum. 

Til marks um þetta er fyrsti fundur Norðurskautsráðsins og Efnahagsráðs norðurslóða sem hefst í Reykjavík í dag. Þar koma saman fulltrúar aðildarríkjanna átta, frumbyggjasamtaka og fyrirtækja sem starfa á svæðinu. Markmiðið er skýrt: Að vinna sameiginlega að sjálfbærri efnahagsþróun á norðurslóðum, íbúum svæðisins til hagsbóta. Þannig stöndum við sterkari til að tryggja framtíð þessa mikilvæga heimshluta. 

Greinin birtist í Fréttablaðinu 9. október 2019

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum