Hoppa yfir valmynd

Styrkir til félagasamtaka í þróunarsamvinnu

Opið er fyrir umsóknir um styrki þróunarsamvinnuverkefna og kynningar- og fræðsluverkefna. Umsóknarfrestur er til og með 11. mars 2024. Allar nánari upplýsingar má finna hér fyrir neðan. 

Vakin er athygli á því að ný stefna í alþjóðlegri þróunarsamvinnu var samþykkt á Alþingi í desember 2023.

Hafa þín félagasamtök áhuga á að leggja sitt af mörkum til að ná markmiðum Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu og styðja heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna? Utanríkisráðuneytið bíður uppá styrkveitingar til þróunarsamvinnuverkefna á vegum félagasamtaka.

Auglýst er reglulega eftir umsóknum um styrki vegna samstarfsverkefna af þessu tagi:

  • Nýliðaverkefni
  • Styttri þróunarsamvinnuverkefni
  • Lengri þróunarsamvinnuverkefn
  • Kynningar- og fræðsluverkefni

Um framlögin

Markmið með samstarfi við félagasamtök og fyrirtæki í þróunarsamvinnu er að draga úr fátækt, bregðast við neyðarástandi og styðja við atvinnusköpun og sjálfbæran vöxt í þróunarríkjum. Þátttaka og samstarf ólíkra hagsmunaaðila er grundvöllur þess að hægt sé að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun á fullnægjandi hátt.

Utanríkisráðuneytið bíður uppá styrki til þróunarsamvinnuverkefna, þ.m.t. styttri verkefna, langtíma verkefna og nýliðaverkefna. Einnig geta félög sótt um kynningar- og fræðslustyrki. Nánari upplýsingar um umsóknir má finna neðst á síðunni. Mannúðaraðstoð á vegum félagasamtaka fer fram í gegnum sérstaka rammasamninga og ekki er auglýst sérstaklega eftir styrkjum til stakra verkefna.

Veittir eru styrkir til þróunarsamvinnuverkefna sem koma til framkvæmdar á lista Þróunarsamvinnunefndar Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD DAC) um viðtökulönd opinberrar þróunaraðstoðar, með áherslu á lág- og lágmillitekjuríki. Kynningar- og fræðsluverkefni skulu framkvæmd á Íslandi.

Úthlutað er samkvæmt settum reglum utanríkisráðuneytisins um styrki til félagasamtaka og fyrirtækja í þróunarsamvinnu nr. 1035/2020, sérstökum verklagsreglum vegna hvers styrkjaflokks fyrir sig og unnið í samræmi við Stefnumið um samstarf við félagasamtök 2022.

Styrkhæfir aðilar

Styrkveitingar eru takmarkaðar við íslensk félagasamtök og þurfa þau að uppfylla a.m.k. eftirtalin skilyrði:

  • Vera skráð í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra sem félagasamtök, skv. rekstrarformi eða starfsgreinaflokkun, eða vera skráð sem félag til almannaheilla með starfsemi yfir landamæri skv. lögum nr. 119/2019,
  • ekki vera rekin í hagnaðarskyni (e. non-profit),
  • hafa sett sér lög og starfandi stjórn,
  • félagsmenn, styrktaraðilar eða stuðningsaðilar séu minnst 30 talsins,
  • hafa lagt fram staðfestan ársreikning.
  • Umsækjendur þurfa að uppfylla kröfur Ríkisendurskoðunar um meðferð og vörslu fjármuna á sviði þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar.

Nánar um styrkhæfi má sjá í reglum nr. 1035/2020 og þar til gerðum verklagsreglum fyrir hvern styrkjaflokk sem finna má neðst á síðunni.

Umsóknarferli

Utanríkisráðherra úthlutar styrkjum að fengnu áliti matshóps skipuðum þremur sérfræðingum eftir því sem við á. Er þetta samkvæmt reglum um styrkveitingar utanríkisráðuneytisins til félagasamtaka og fyrirtækja í þróunarsamvinnu nr. 1035/2020. Umsóknarfrestur vegna allra verkefna er að öllu jafna 6 vikur frá upphafsdegi umsóknarferils.

Fyrirspurnir og umsóknir má senda á [email protected]

Þróunarsamvinnuverkefni

Opið er fyrir umsóknir um styrki til þróunarsamvinnuverkefna frá 29. janúar til og með 11. mars 2024. Sjá nánar hér.

Félagasamtök geta sótt um fjórar tegundir styrkja til þróunarsamvinnuverkefna:

  • Nýliðaverkefni
  • Styttri þróunarsamvinnuverkefni
  • Langtímaþróunarsamvinnuverkefni
  • Kynningar- og fræðsluverkefni

Allt að 96 m.kr. eru til úthlutunar til nýrra verkefna, þar af allt að 15 milljónir til kynningar- og fræðsluverkefna. Nýliðastyrkir eru ætlaðir félagasamtökum sem ekki hafa áður hlotið styrk frá ráðuneytinu. Geta þeir hæst numið 4 m.kr. og eru veittir til eins árs. Styrkir til kynningar- og fræðsluverkefna eru veittir til afmarkaðra og tímabundinna verkefna, ekki lengur en til eins árs í senn og geta hæst numið 2 m.kr.

Eyðublöð og önnur göng er hægt að nálgast neðar á síðunni. Umsóknir skulu berast beint til ráðuneytisins á [email protected]

Hér má sjá yfirlit yfir þau félög sem fengu úthlutað styrkjum 2022 og 2023

Mannúðaraðstoð

Rammasamningar um mannúðaraðstoð við félagasamtök hafa tekið við af einstökum styrkjum og er ekki auglýst eftir umsóknum um staka styrki í þessum flokki. Gerðir voru rammasamningar við þrjú félagasamtök: Barnaheill – Save the Children á Íslandi, Hjálparstarf kirkjunnar og Rauða krossinn á Íslandi.

Rammasamningar

Í kjölfar úttektar á samstarfi ráðuneytisins við félagasamtök var auglýst eftir áhugasömum og reyndum félagasamtökum vegna gerð rammasamninga, bæði vegna mannúðaraðstoðar og þróunarsamvinnuverkefna. Gerðir voru rammasamningar við eftirfarandi félagasamtök:

  • Barnaheill – Save the Children á Íslandi: Mannúðaraðstoð og þróunarsamvinna
  • Hjálparstarf kirkjunnar: Mannúðaraðstoð og þróunarsamvinna
  • Rauði krossinn á Íslandi: Mannúðaraðstoð og þróunarsamvinna
  • SOS barnaþorpin á Íslandi: Þróunarsamvinna

Gerðir hafa verið rammsamningar vegna kynningar- og fræðslumála við landsnefnd UN Women, landsnefnd UNICEF og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Eyðublöð og önnur gögn

Eyðublöð og önnur viðeigandi gögn fyrir umsóknir vegna þróunarsamvinnuverkefna má nálgast hér að neðan. 

Athygli er vakin á því að eyðublöð og gögn eru ekki þau sömu fyrir styttri/langtíma þróunarsamvinnuverkefni og kynningar- og fræðsluverkefni þó að styrkveitingin sé undir sama hatti. Því er mikilvægt að lesa vel þær upplýsingar sem gilda.

Hér má finna skjöl vegna styrkveitinga til þróunarsamvinnuverkefna.

Athugið að viðhengi I – Verkefnaskjal og viðhengi II – Rökrammi eru tillögur að sniðmáti og ekki er krafa um að félög noti þessi tilteknu skjöl í umsóknum sínum en þó er gerð krafa á að verkefnaskjal og rökrammi fylgi með umsókn. Leyfilegt er að nýta verkefnaskjöl uppsett eftir eigin hentisemi eða frá samstarfsaðilum á vettvangi en miðað er við að þær grunnupplýsingar sem koma fram í sniðmáti komi fram í verkefnaskjölum.

Hér má finna skjöl vegna styrkveitinga til kynningar- og fræðsluverkefna.

Athugið að viðhengi I. – Verkefnaskjal er tillaga að sniðmáti og ekki er krafa um að félög noti þetta tiltekna skjal í umsóknum sínum. Leyfilegt er að nýta verkefnaskjöl uppsett eftir eigin hentisemi eða frá samstarfsaðilum á vettvangi en miðað er við að þær grunnupplýsingar sem koma fram í sniðmáti komi fram í verkefnaskjali

Ekki er lengur auglýst eftir umsóknum um styrki til mannúðaraðstoðar á vegum félagasamtaka. Rammasamningar um mannúðaraðstoð við félagasamtök hafa tekið við af einstökum styrkjum. Gerðir voru rammasamningar við þrjú félagasamtök: Barnaheill – Save the Children á Íslandi, Hjálparstarf kirkjunnar og Rauða krossinn á Íslandi.

Í kjölfar úttektar á samstarfi ráðuneytisins við félagasamtök var auglýst eftir áhugasömum og reyndum félagasamtökum vegna gerð rammasamninga, bæði vegna mannúðaraðstoðar og þróunarsamvinnuverkefna. Gerðir voru rammasamningar við eftirfarandi félagasamtök:

  • Barnaheill – Save the Children á Íslandi: Mannúðaraðstoð og þróunarsamvinna
  • Hjálparstarf kirkjunnar: Mannúðaraðstoð og þróunarsamvinna
  • Rauði krossinn á Íslandi: Mannúðaraðstoð og þróunarsamvinna
  • SOS barnaþorpin á Íslandi: Þróunarsamvinna

Sjá einnig:

Síðast uppfært: 25.1.2024
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum