Hoppa yfir valmynd

Stök ræða fyrrum fjármálaráðherra

21. maí 2012 Mennta- og barnamálaráðuneytiðKatrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra 2009-2013

Stefnumót að vori 

Grein Katrínar Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra í tilefni af Listahátíð í Reykjavík 2012. Birtist í Fréttablaðinu 18. maí 2012.

Það vorar og Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag. Næstu vikur verður hægt að næra andann og njóta þeirra fjölbreyttu viðburða sem hátíðin færir okkur í þetta skiptið.

Reykjavík er mikil menningarborg, langt umfram það hve margir búa í henni og á landinu öllu, ef því er að skipta. Sköpunarkraftur landsmanna er lykilþáttur í því fjölbreytta menningarlífi en Listahátíð í Reykjavík er eitt af þeim verkefnum sem nærir þetta mikla líf og leggur til dýrmæta mælikvarða sem hægt er að beita á menningarlífið. Í því sambandi hafa erlendir gestir hátíðarinnar skipt miklu máli og fært nýjungar og viðmið til landsins og íslenskir listamenn og almenningur hafa notið góðs af þeim samanburði. Hátíðin hefur þannig veitt innblástur og eflt vitund um stöðu og horfur í íslenskri menningu.

Listahátíð í Reykjavík hefur á undanförnum árum líka verið mikilvægur vettvangur fyrir stefnumót grasrótar íslenskra lista og hefðanna sem myndast hafa í menningarlífinu. Slíkt samtal er öllum hollt og gott. Frumsköpun í íslenskum listum er mikilvæg um leið og hugað er að arfi þjóðarinnar í listum og menningu.

Listir, í sínum fjölbreyttu myndum, geta þegar best lætur höfðað bæði til hjarta og heila. Fyrir marga brjóta þær upp daginn, koma róti á hugann, hrífa menn eða hneyksla, kæta eða græta, reita jafnvel til reiði. Listir eru hluti af þekkingarleit mannsins sem ekki er alltaf hægt að fella undir hagvaxtarmælikvarða eða bræða í mæliker vísindamanna þó að flestir telji þær ómissandi hluta mannlegs samfélags.

Á undanförnum árum hefur líka færst í vöxt að dagskrá Listahátíðar færist út á götur og torg borgarinnar og liðin er sú tíð að menn umgangist listir með hvítum hönskum, alvarlegir á svip. Lykilatriðið er að njóta, upplifa og síðast en ekki síst skapa. Rétt er að hvetja alla til að kynna sér dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2012 og finna sér eitthvað við hæfi. Við eigum stefnumót við listina.

Katrín Jakobsdóttir

Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum