Hoppa yfir valmynd
25. nóvember 2010 ForsætisráðuneytiðJóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra 2009-2013

Sögulegar kosningar til stjórnlagaþings

Næstkomandi laugardag göngum við Íslendingar til sögulegra kosninga þar sem valdir verða fulltrúar á stjórnlagaþing. Kosningarnar eru mikilvægur þáttur í því merkilega lýðræðisferli sem nú fer fram við mótun nýrrar stjórnarskrár fyrir Ísland. Vil ég hvetja alla sem kosningarétt hafa til að nýta sér þetta einstæða tækifæri til að hafa áhrif á framtíð þjóðarinnar og taka þátt í að móta þann ramma eða grundvöll sem íslenskt samfélag mun byggja á.

Ég hef lengi haft þá sannfæringu að forsenda þess að sátt náist um heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar, eins og stefnt hefur verið að allt frá stofnun lýðveldisins, sé að þjóðin sjálf og fulltrúar hennar sem ekki hafa beina hagsmuni af lítt breyttu fyrirkomulagi vinni það verk. Alþingi Íslendinga hefur ekki auðnast það þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Sem þingmaður flutti ég fyrst frumvarp um sérstakt stjórnlagaþing, skipað öðrum en þingmönnum, haustið 1994. Lengi vel talaði ég fyrir daufum eyrum í þessum efnum en eftir það mikla efnahags- og stjórnmálahrun sem við urðum fyrir haustið 2008 breyttust viðhorfin. 

Lög um stjórnlagaþing nr. 90/2010 sem samþykkt voru 16. júní 2010 eiga sér fáar hliðstæður í heiminum og munu þau væntanlega hafa áhrif á lýðræðisþróun og aðferðafræði við mótun stjórnarskráa. Samkvæmt lögunum er sérstöku stjórnlagaþingi ætlað það mikilvæga hlutverk að semja frumvarp að nýrri stjórnarskrá fyrir Ísland og leggja fyrir Alþingi til samþykktar. Í þessu skyni var á grundvelli laganna efnt til 1000 manna þjóðfundar í upphafi þessa mánaðar þar sem fulltrúar allrar þjóðfélagshópa hvaðanæva af landinu komu sér saman um helstu gildi og grunnþætti sem ný stjórnarskrá ætti að byggja á.  Þjóðfundurinn heppnaðist afar vel og sú uppbyggjandi samstaða sem þar sveif yfir vötnum vekur góðar vonir um framhaldið.

Næsta skref í þessu lýðræðislega ferli er að velja fulltrúa á  stjórnlagaþingið sem standa mun í 2-4 mánuði fyrri hluta árs 2011 og mun því ljúka störfum í tæka tíð fyrir 200 ára afmæli Jóns Sigurðssonar 17. júní 2011. Niðurstöðurnar munu síðan fara til Alþingis til afgreiðslu í samræmi við ákvæði gildandi stjórnarskrár. Líklegt er þó að ákveðið verði að þjóðaratkvæðagreiðsla muni fara fram um endurskoðaða stjórnaskrá áður en hún gengur í gildi.

Val fulltrúa á stjórnlagaþingið sætir einnig tíðindum í lýðræðisþróun á Íslandi enda verða þeir kjörnir beinni kosningu með persónukjöri meðal allra landsmanna. Með kosningunum er gerð tilraun með nýtt kosningafyrirkomulag þar sem atkvæði kjósenda nýtast mun betur en í hefðbundnum listakosningum og möguleikar kjósenda til að kjósa einstaklinga í stað flokka verður að veruleika. Kosningaþátttakan og hvernig til tekst getur því varða miklu um þróun kosningafyrirkomulags og lýðræðis á Íslandi.

Ég vil nota þetta tækifæri til að færa þeim einstaklingum miklar þakkir sem lagt hafa þessu mikilvæga samfélagsverkefni lið, ekki síst þátttakendum þjóðfundarins og þeim fjölmenna hópi frambjóðenda sem gefið hafa kost á sér til setu á stjórnlagaþingið. Þjóðfundurinn og kosningabaráttan hefur þegar hrundið af stað mikilli umræðu um allt þjóðfélagið um grundvöll þess samfélags sem við viljum byggja og ég er sannfærð um að við munum uppskera vandaða stjórnarskrá – umgjörð um betra samfélag á Íslandi. Í komandi kosningum á laugardaginn getur öll íslenska þjóðin lagt sitt af mörkum til þess mikilvæga verkefnis. Ég hvet alla til að nýta sér þann rétt.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum