Hoppa yfir valmynd
08. janúar 2011 ForsætisráðuneytiðJóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra 2009-2013

Ísland árið 2020

Ísland 2020 – sókn fyrir atvinnulíf og samfélagÁ vormánuðum 2009 efndi Ríkisstjórn Íslands til víðtæks samráðs undir forystu forsætisráðuneytisins um sóknaráætlanir fyrir alla landshluta til eflingar atvinnulífs og lífsgæða til framtíðar undir yfirskriftinni Sóknaráætlun 20/20. Markmið verkefnisins var meðal annars að kalla fram sameiginlega framtíðarsýn, móta atvinnustefnu, kortleggja samkeppnishæfni landsins og samþætta áættlanagerð innan stjórnsýslunnar.  Sóknaráætlunarferlið var viðamikið og alls tóku um 1000 manns þátt í því víða um land; almennir þátttakendur á átta landshlutafundum, aðilar vinnumarkaðarins og fulltrúar í Vísinda og tækniráði, í sérfræðiráðum, verkefnahópum og innan stjórnsýslunnar auk kjörinna fulltrúa á Alþingi og í sveitarstjórnum.

Við stöndum eftir með sterkt stefnumarkandi skjal, grunn að atvinnustefnu, kafla um samkeppnishæfni, niðurstöður þjóðfunda og gríðarlegt magn grunnupplýsinga um landshluta.

Niðurstöður Sóknaráætlunar 20/20

Niðurstöðurnar hvað varðar stjórnsýsluna er Ísland 2020, stefnumarkandi skjal sem inniheldur 20 mælanleg víðtæk markmið á sviði efnahags-, þróunar-, þekkingar-, sjálfbærni- og velferðarmála til næstu tíu ára. Markmið Íslands 2020 gegna því tvíþætta hlutverki að bæta hér velferð, þekkingu, efnahag, sjálfbærni og stuðla að jákvæðri þróun ásamt því að nýtast stjórnsýslunni til að sameina krafta sína og vinna saman að sameiginlegum mælanlegum markmiðum. Á hverju ári verður svo staða markmiðana opinberuð.

Markmiðin eru eftirtalin:

  1. Að skuldir ríkissjóðs verði ekki hærri en 60% af landsframleiðslu árið 2020.  
  2. Verðbólga verði árið 2020 ekki hærri en tvö prósentustig umfram verðbólgu í þeim þremur ríkjum ESB þar sem hún er lægst.
  3. Vextir verði árið 2020 ekki hærri en tvö prósentustig umfram vexti í þeim þremur ríkjum Evrópu þar sem vextir eru lægstir.
  4. Þróunarstuðull Sameinuðu þjóðanna fyrir Ísland verði sambærilegur við stuðul fimm efstu þjóða.
  5. Að vöxtur framfarastuðulsins haldist ætið sá hinn sami og vöxtur þjóðarframleiðslu.
  6. Að minnka hlutfall örorkulífeyrisþega af íbúafjölda úr 8,4% í 7,0% árið 2020.
  7.  Að lækka hlutfall atvinnulausra niður fyrir 3% árið 2020.  
  8. Að auka jöfnuð á Ísland með lækkun Gini stuðuls fyrir ráðstöfunartekjur í um 25 árið 2020.  
  9. Að bæta stöðu jafnréttismála þannig að gildi jafnréttisvísitölunnar global gender gap index  verði nálægt 0,9 árið 2020.  
  10. Að auka vellíðan og góða andlega heilsu þannig að meðaltal mælinga, samkvæmt WHO 5 kvarðanum hækki úr 64 árið 2009 í 72 árið 2020.  
  11. Að hlutfall íslendinga á aldrinum 20-66 ára sem ekki haf a hlotið formlega framhaldsmenntun fari úr 30% niður í 10% árið 2020.  
  12. Að 4% af landsframleiðslu sé varið til rannsókna, þróunar og nýsköpunar og að hlutfall framlags fyrirtækja í samkeppnissjóði og markáætlanir sé 70% á móti 30% framlagi ríkisins.
  13. Að Ísland verði meðal 10 efstu þjóða árið 2020 í rafrænni stjórnsýsluvísitölu og rafrænni þátttökuvísitölu sem mæld er af Sameinuðu þjóðunum.
  14. Að hátækniiðnaður skapi 10% af landsframleiðslu og 15% af útflutningsverðmætum árið 2020.
  15. Að notkun vistvæns eldsneytis í sjávarútvegi verði a.m.k 20% árið 2020 og að 20% alls eldsneytis í samgöngum verði vistvænt.
  16. Að Ísland taki á sig sambærilegar skuldbindingar og ríki Evrópu gagnvart loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna árið 2020.
  17. Að vistvæn nýsköpun og afurðir hennar verði helsta vaxtargreinin næsta áratug, með 20% árlegan vöxt í veltu sem tvöfaldist fyrir 2015, miðað við 2011.
  18. Að árið 2020 gangi 75% nýrra bifreiða, undir fimm tonnum að þyngd, fyrir vistvænu eldsneyti.
  19. Að hlutfall innlendrar matvöru í neyslu landsmanna aukist um 10% fyrir árið 2020.
  20. Árið 2020 verði færni íslenskra grunnskólanemenda sambærileg við 10 efstu þjóðir samkvæmt OECD PISA rannsókninni á lesskilningi og læsi á stærðfræði og raungreinar.

Skýr markmið og samhæfð eftirfylgni

Stefnumörkunin Ísland 2020 var samþykkt í ríkisstjórn þriðjudaginn 21. desember 2010. Hún endurspeglar viðleitni stjórnvalda til þess að horfa fram á veginn og setja mælanleg langtímamarkmið sem unnið verður að með breyttu og endurskoðuðu skipulagi við stefnumótun og áætlanagerð.

Alltof lengi hefur stefnumótun og áætlanagerð setið hjá garði innan stjórnsýslunnar. Við höfum ekki stuðst nægilega við þær stefnur og áætlanir sem við höfum þó gert. Vægi stefnumótunar og áætlanagerðar þarf að aukast. Við þurfum að sameinast um gerð þeirra, einfalda vinnulag og skipulag í kringum ferlið, fækka aðgerðum og fylgja þeim betur eftir. Mikilvægt er að fækka og samþætta vinnu við lögbundnar áætlanir stjórnsýslunnar, t.d. samgönguáætlun, samskiptaáætlun, byggðaáætlun, ferðamálaáætlun, heilbrigðisáætlun ofl.. Við munum einnig tengja þær fjárlögum í auknum mæli og framkvæma það sem við setjum okkur út frá aðgerðaáætlunum.

Ísland 2020 er stefnumörkun sem stjórnsýslan mun sameinast um að vinna með. Markmiðin hafa verið sett og það er von mín og trú að á grunni stefnumörkunarinnar geti stjórnsýslan unnið sem ein heild út þennan áratug.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum