Hoppa yfir valmynd
08. mars 2012 ForsætisráðuneytiðJóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra 2009-2013

Baráttan heldur áfram

Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, 8. mars, eru þúsundir viðburða um allan heim um viðfangsefni jafnréttisbaráttunnar. Sameinuðu þjóðirnar helga daginn baráttunni gegn hungri og fátækt milljóna kvenna og stúlkubarna. Saga þessa dags spannar nú eina öld og eitt ár betur. Frá upphafi var áherslan á launajafnrétti, bættar vinnuaðstæður og hóflegan vinnutíma. Nú vitum við að líka þarf að breyta menningunni, staðalmyndunum, forgangsröðun stjórnmálanna og efnahagsmálanna og virða þarfir og framlag kvenna og karla til samfélagsins að jöfnu. Krafan er að konur komi að mótun og stjórnun samfélagsins á öllum sviðum þess til jafns við karla.

Íslandi hefur í þrjú ár í röð verið skipað í efsta sæti árlegs lista Alþjóða efnahagsráðsins yfir stöðu jafnréttismála í heiminum. En listinn sýnir líka að mikið vantar upp á að árangur okkar varðandi launamun kynja og hlut kvenna í stjórnunar- og áhrifastöðum sé sambærilegur við árangur á öðrum sviðum jafnréttismálanna.

Á næsta ári taka gildi lög um hlut kynja í stjórnum fyrirtækja. Lögin voru sett í kjölfar þess að árum saman hafði atvinnulífinu ekki tekist af eigin rammleik að auka hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja svo neinu næmi, þrátt fyrir stóraukna menntun kvenna og þrátt fyrir að rannsóknir hafi leitt í ljós að fyrirtæki sem er stjórnað af báðum kynjum eru einfaldlega betur rekin. Nýlega var sýnt fram á að um 200 stjórnarsæti bíða þess að verða skipuð konum. Ég er sannfærð um að íslenskar konur eru tilbúnar til að svara kallinu – sem og atvinnulífið allt.

Um þessar mundir er unnið að framkvæmdaáætlun um launajafnrétti kynja, sem verður kynnt síðar í þessum mánuði. Þá hefur verið ákveðið að gera áætlun um endurreisn fæðingarorlofskerfisins, þar sem marka á stefnu um hækkun á greiðslum í áföngum sem og lengingu orlofsins upp í 12 mánuði. Margt hefur áunnist í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi, þ. á m. hafa lagaákvæði verið hert, en þessari baráttu er bráðnauðsynlegt að halda áfram af fullum krafti. Þessi þrjú mál verða forgangsmál ríkisstjórnar minnar í jafnréttismálum næstu misserin.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum