Hoppa yfir valmynd

Ungliðastöður á vegum Sameinuðu þjóðanna (e. Junior Professional Officers)

Flestar stofnanir Sameinuðu þjóðanna (SÞ) starfrækja svokallað Ungliðaverkefni (e. Junior Professional Officers Programme) þar sem ungu fagfólki er gefið tækifæri til að öðlast reynslu á sviði fjölþjóðlegrar samvinnu undir umsjón sérfræðinga.

Um er að ræða byrjendastöður (yfirleitt sérfræðingar sem fylla P1 eða P2 stöðugildi innan SÞ kerfisins). Viðkomandi samstarfsstofnun SÞ tekur ákvörðun um ráðningu, en ráðning er til eins árs með möguleika á framlengingu um eitt ár til viðbótar. Sérfræðingurinn verður starfsmaður viðkomandi samstarfsstofnunar SÞ og launa- og starfskjör eru samkvæmt reglum stofnunarinnar.

Umsækjendur þurfa að vera 32 ára og yngri (miðað er við fæðingarár), hafa háskólagráðu sem nýtist í starfi, a.m.k. tveggja ára viðeigandi starfsreynslu og mjög góða færni í ensku.

Hér fyrir neðan eru frekari upplýsingar um Ungliðaverkefni SÞ á vegum þeirra stofnanna sem Ísland á í samstarfi við að þessu sinni:


Kynningarfundur um ungliðastöður á vegum Sameinuðu þjóðanna

Utanríkisráðuneytið og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi standa fyrir rafrænum kynningarfundi um ungliðaverkefni Sameinuðu þjóðanna milli kl 12:00-13:15 miðvikudaginn 22. febrúar.

UNGLIÐASTÖÐUR LAUSAR TIL UMSÓKNAR:

                            

Ungliðastaða á vegum Samhæfingarskrifstofu aðgerða SÞ í mannúðarmálum

Staða sérfræðings í mannúðarmálum hjá Samhæfingarskrifstofu aðgerða SÞ í mannúðarmálum (e. JPO in Humanitarian Affairs). Sérfræðingurinn verður staðsettur á Vesturbakkaskrifstofu OCHA í Jerúsalem.

Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2023.

                            

Ungliðastaða á vegum UN Women í Jórdaníu

Staða sérfræðings í verkefnastjórnun innan samvirkni mannúðarmála hjá UN Women (e. Programme Analyst, Humanitarian and Nexus programming) í tengslum við málefni sýrlensks flóttafólks í Jórdaníu. Sérfræðingurinn verður staðsettur á landaskrifstofu UN Women í Amman í Jórdaníu.

Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2023.


Ungliðastaða á vegum UNICEF á sviði upplýsingamála

Staða sérfræðings í verkefnastjórnun innan mannúðarmála hjá Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (e. Programme Policy Officer). Sérfræðingurinn verður staðsettur á landaskrifstofu Matvælaáætlunar SÞ í Freetown, Sierra Leone.

Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2023.

Síðast uppfært: 15.2.2023
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum