Hoppa yfir valmynd

Fjölþjóðleg þróunarsamvinna

Samstarf við alþjóðastofnanir er lykilþáttur í þróunarstarfi íslenskra stjórnvalda og veitir Ísland ýmist stuðning með fjárframlögum eða málsvarastarfi. Fjárframlög eru einkum veitt í formi kjarnaframlaga sem eru óeyrnamerkt framlög sem renna beint til starfseminnar eða í formi framlaga sem eru eyrnamerkt ákveðnum verkefnum, löndum eða þematískum áherslusviðum. Jafnframt styðja íslensk stjórnvöld við starf stofnana með störfum íslenskra sérfræðinga á vettvangi.

Samkvæmt stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2024-2028 verður áhersla lögð á störf fjögurra stofnana í alþjóðlegri þróunarsamvinnu: Alþjóðabankans (World Bank), Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), Stofnunar Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna (UN Women) og Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA). Starfað er eftir stefnumiðum í fjölþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands.

 

Sjá einnig:

Síðast uppfært: 4.1.2024 1
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum