01 Alþingi og eftirlitsstofnanir þess
Umfang
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð forseta Alþingis. Það skiptist í tvo málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu ásamt fjárhagslegri þróun þeirra og málefnasviðsins í heild á tímabilinu 2021–2023.
Framtíðarsýn og meginmarkmið
Meginverkefni Alþingis er lagasetning en þingið fer einnig með viðamikið eftirlitshlutverk. Starfshættir Alþingis eru ákvarðaðir í stjórnarskrá og þingsköpum.
Alþingi fer með eftirlit gagnvart framkvæmdarvaldinu og á vegum þess starfa tvær sjálfstæðar stofnanir, umboðsmaður Alþingis og ríkisendurskoðandi. Umboðsmaður Alþingis hefur eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga en einnig geta borgarar leitað til embættisins til að fá álit á því hvort leyst hafi verið úr þeirra málum í samræmi við lög. Með þessu er réttaröryggi borgaranna styrkt og Alþingi fær innsýn í starfshætti stjórnvalda. Ríkisendurskoðandi hefur eftirlit með fjárreiðum ríkisins, stofnana þess og ríkisfyrirtækja. Markmið embættis ríkisendurskoðanda miða að betri nýtingu ríkisfjármuna og bættri opinberri þjónustu.
Fjármögnun
Breyting á fjárheimildum til málefnasviðsins skýrist einkum af tímabundnu 106 m.kr. framlagi vegna Norðurlandaráðsþings sem verður haldið á Íslandi árið 2024. Auk þess er gert ráð fyrir tímabundnu 245 m.kr. framlagi vegna alþingiskosninga sem fara fram árið 2025. Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárheimildir málefnasviðsins til næstu fimm ára og áætlaða skiptingu þeirra í rekstur og tilfærslur annars vegar og fjárfestingu hins vegar.
Helstu áherslur 2024–2028
01.1 Alþingi
Verkefni
Undir þennan málaflokk fellur bæði hin eiginlega þingstarfsemi og starfsemi skrifstofu þingsins. Meginhlutverk Alþingis er lagasetning og eftirlit með störfum framkvæmdar-valdsins. Skrifstofa Alþingis annast stjórnsýslu þingsins og hefur það verkefni að tryggja faglega umgjörð um starfsemi Alþingis þannig að þingmenn geti sinnt þeim verkefnum sem þeim er ætlað samkvæmt stjórnarskrá, þingsköpum og öðrum lögum. Í því skyni sinnir skrif-stofan sérfræðiþjónustu við þingfundi, fastanefndir og alþjóðastarf og rekur upplýsinga- og rannsóknaþjónustu. Skrifstofan annast auk þess fjölþætta aðra þjónustu sem nauðsynleg er fyrir rekstur þingsins og uppbyggingu og rekstur fasteigna á Alþingisreit. Þá er það hluti af stöðu Alþingis sem grunnstofnunar lýðræðislegrar stjórnskipunar landsins að miðla upplýsingum um starfsemi Alþingis, m.a. með rekstri vefs og útgáfu- og fræðslustarfsemi og rekstri Skólaþings þar sem nemendur fara í hlutverkaleik og fylgja starfsháttum og verkferlum Alþingis. Einnig hefur skrifstofan á hendi ýmis föst verkefni sem tengjast Alþingi, m.a. rekstur Jónshúss í Kaupmannahöfn, auk þess að hafa á hendi ýmis tímabundin verkefni í tilefni af sérstökum viðburðum. Þegar Alþingi tekur ákvörðun um skipun rannsóknarnefnda samkvæmt lögum nr. 68/2011 kemur það jafnframt í hlut skrifstofu þingsins að hafa á hendi umsýslu í tengslum við starfsemi rannsóknarnefndanna.
Helstu áskoranir
Helstu áskoranir skrifstofu Alþingis snúa að því að bæta enn frekar þjónustu við þingmenn með því að efla upplýsinga- og gagnakerfin, auka aðgengi og þekkingu nemenda sem og almennings á þingstörfum og lýðræðislegum vinnubrögðum, ná markmiðum um betri vinnutíma (styttri vinnuviku) og ná fram hagræðingu í rekstri fasteigna.
Tækifæri til umbóta
Mikil áhersla er lögð á að styrkja Alþingi og bæta almennt sérfræðiþjónustu við þingmenn sem og að vinna að stafrænum lausnum. Einnig er nauðsynlegt að bæta aðgengi og aðstöðu þingmanna í þingsal með endurnýjun á húsbúnaði og tæknilegum þáttum hans. Í tengslum við styttingu vinnuvikunnar og betri vinnutíma eru allir verkferlar alltaf í markvissri endurskoðun í anda straumlínustjórnunar.
Unnið er að því að auka fræðslustarf Alþingis, einkum meðal ungs fólks, enda mikilvægt að efla lýðræðisvitund fólks og fræða almenning um þá stofnun sem er grundvöllur íslensks lýðræðisskipulags. Boðið er upp á fjölbreyttar fræðsluleiðir sem byggðar eru á hæfniviðmiðum aðalnámskrár fyrir öll skólastig. Einnig er stuðst við fjórðu markmiðsgrein heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, menntun fyrir alla, þar sem kveðið er á um jafnt aðgengi að menntun, fræðslu og upplýsingum. Gott aðgengi að fræðslu óháð búsetu er því haft að leiðarljósi við þróun nýrra fræðsluleiða. Til að sýna samfélagsábyrgð og stefna að kolefnishlutleysi er Alþingi m.a. búið að taka öll Grænu skrefin og sérsmíðuð lausn fyrir ferðakerfið gerir mögulegt að setja inn kolefnisspor hverrar ferðar sem farin er til útlanda á vegum þingsins.
Markmið og mælikvarðar
Markmið |
HM |
Mælikvarðar |
Staða 2022 |
Viðmið 2024 |
Viðmið 2028 |
Bæta gæði og öryggi upplýsingakerfa á Alþingi |
9 |
Endurnýjun þingmálakerfa, 4 kerfi |
3 kerfi |
4 kerfi |
Lokið |
Bæta réttaröryggi og gegnsæi í lagasetningu með stafrænni þróun þingskjala |
9 og 16 |
Snjöll þingskjöl |
Í undirbúningi |
Verklok |
Lokið |
Styrkja starfsemi Skólaþings |
4 |
Fjöldi heimsókna |
787 |
1200 |
1400 |
Skólaþing, þróa nýjar fræðsluleiðir |
4 |
Fleiri nemendur af landsbyggðinni í Skólaþing |
Í undirbúningi |
Í framkvæmd |
400 |
01.2 Eftirlitsstofnanir Alþingis
Undir þennan málaflokk falla tvær eftirlitsstofnanir Alþingis, umboðsmaður Alþingis og ríkisendurskoðandi. Báðar stofnanirnar heyra undir Alþingi en eru sjálfstæðar í störfum sínum. Þær sinna margháttuðu eftirliti með stjórnsýslu og fjárreiðum hins opinbera.
Umboðsmaður Alþingis
Verkefni
Umboðsmaður hefur eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga í umboði Alþingis. Stærsti þáttur reglulegrar starfsemi umboðsmanns felst í því að taka við kvörtunum frá borgurum og láta uppi álit sitt um hvort athafnir stjórnvalda brjóti í bága við lög eða séu andstæðar vönduðum stjórnsýsluháttum. Umboðsmaður getur þó einnig að eigin frumkvæði tekið mál eða starfsemi og málsmeðferð stjórnvalds til athugunar. Ef umboðsmaður verður þess var að meinbugir séu á gildandi lögum eða almennum stjórnvaldsfyrirmælum skal hann tilkynna það Alþingi, hlutaðeigandi ráðherra eða sveitarstjórn. Þá sinnir umboðsmaður OPCAT-eftirliti samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum o.fl. sem beinist að stofnunum og heimilum þar sem frelsissviptir einstaklingar dveljast. Að síðustu er umboðsmanni falið að gæta þess að stjórnsýslan fari fram í samræmi við siðareglur settar á grundvelli laga um Stjórnarráð Íslands og laga um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna.
Veigamikill þáttur í starfi skrifstofu umboðsmanns er einnig að svara fyrirspurnum og leiðbeina borgurunum í samskiptum þeirra við stjórnvöld og um möguleika til að leggja fram kvartanir. Þá sinnir embættið að einhverju marki fræðslu gagnvart stjórnvöldum, alþjóðlegum samskiptum, m.a. vegna OPCAT auk þess sem af hlutverki embættisins leiðir ýmis upplýsingagjöf gagnvart Alþingi, einkum nefndum þess.
Helstu áskoranir
Í gildandi fjármálaáætlun var miðað við að á árinu 2023 yrðu kvartanir 600 í samræmi við fjölgun árin þar á undan. Á síðari árshelmingi 2022 varð hins vegar lítilleg fækkun kvartana sem urðu samtals 528 í stað 570 árið þar á undan. Af þessum sökum þykir rétt að miða við að hægja muni á fjölgun mála en hér ber þó að hafa í huga að fyrrgreind fækkun er bundin við einn árshelming. Fjöldi afgreiddra mála með tilliti til innkominna og afgreiðslutími var yfir markmiðum gildandi fjármálaáætlunar á árinu 2022.
Helsta áskorun embættisins mun sem fyrr felast í því að viðhalda og bæta málahraða við umfjöllun um kvartanir borgaranna án þess að slakað sé á faglegum kröfum. Samhliða þessu er brýnt að áfram sé leitað leiða til að skapa embættinu nægilegt svigrúm til annarra verkefna, s.s. frumkvæðismála og OPCAT-eftirlits. Í því sambandi ber að hafa í huga að frumkvæðis- og OPCAT-eftirlit umboðsmanns gegnir veigamiklu hlutverki við að tryggja réttindi ýmissa minnihlutahópa þar sem þessir einstaklingar kunna að hafa takmarkaðar forsendur til að beina formlegri kvörtun til embættisins.
Tækifæri til umbóta
Áfram verður leitað leiða til að létta á málsmeðferð kvartanamála með skipulagsbreytingum en einnig er í þessu sambandi horft til áframhaldandi vinnu við rafræna móttöku kvartana og samskipti. Þótt svigrúm til frumkvæðismála verði áfram þröngt (með einn fastan starfsmann á frumkvæðissviði) hefur tekist að stíga ákveðin skref í átt að aukinni virkni og sýnileika embættisins að þessu leyti, bæði með því að ljúka eldri málum og með stofnun nýrra. Áfram verður leitast við að nýta svigrúm á kvartanasviði til frekari styrkingar frumkvæðissviðs, m.a. með aukinni samþættingu.
Á árinu 2022 var OPCAT-eftirlit embættisins styrkt og starfa þar nú þrír starfsmenn. Þá náðist markmiðið um fjölgun eftirlitsheimsókna úr fjórum í sex. Stefnt er að því að hefja eftirlit á nýjum sviðum, þ.á m. með aðstæðum sjúklinga á lokuðum deildum hjúkrunarheimila. Þá er stefnt að því að ljúka athugun á stöðu kvenna innan fangelsiskerfisins sem hafin var á árinu 2023. Hvort unnt verður að viðhalda núverandi starfsemi OPCAT-einingar embættisins (með þrjá starfsmenn) ræðst að verulegu leyti af því hvernig fjöldi kvartana mun þróast. Rætt hefur verið um að embættið taki að sér á þessum grundvelli eftirlit með flutningi brottvísaðra manna samkvæmt lögum um útlendinga. Þar sem sú vinna er enn á hugmyndastigi er ekki gert ráð fyrir fjármögnun slíks verkefnis.
Markmið og mælikvarðar
Markmið |
HM |
Mælikvarðar |
Staða 2022 |
Viðmið 2024 |
Viðmið 2028 |
|||
Að UA leysi úr kvörtunum innan hæfilegs tíma |
16.6 |
Innkomnar |
528 |
600 |
620 |
|
||
16.6 |
Afgreiddar |
556 |
600 |
620 |
|
|||
16.6 |
Afgreiddar innan þriggja mánaða |
90% |
90% |
90% |
|
|||
Að UA geti sinnt hæfilegum fjölda frumkvæðisathugana |
16 |
Nýjar frumkvæðisathuganir |
18 |
15 |
20 |
|
||
16 |
Afgreidd |
14 |
15 |
20 |
|
|||
Að UA geti sinnt OPCAT-eftirliti |
16 |
Heimsóknir |
6 |
6 |
6 |
|
||
Skýrslur |
6 |
6 |
6 |
|
||||
Að viðhaldið verði upplýsingagjöf um störf UA |
16.1 |
Fjöldi reifana, álita og bréfa |
512 |
550 |
600 |
|
||
Ríkisendurskoðun
Verkefni
Ríkisendurskoðandi starfar á vegum Alþingis og er trúnaðarmaður þess samkvæmt lögum um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga nr. 46/2016. Skrifstofa ríkisendurskoðanda nefnist Ríkisendurskoðun. Hlutverk stofnunarinnar er að hafa eftirlit með rekstri og fjármálum ríkisins og að fjármunum sé ráðstafað á hagkvæman og réttmætan hátt og í samræmi við ákvarðanir Alþingis. Stofnunin er sjálfstæð og engum háð í störfum sínum. Ríkisendurskoðandi gerir grein fyrir niðurstöðum sínum í skýrslum til Alþingis sem birtar eru opinberlega. Þar birtast tillögur að úrbótum, bættri stjórnsýslu, skýrari ábyrgð og betri nýtingu ríkisfjár.
Helstu afurðir Ríkisendurskoðunar eru úttektir í formi skýrslna til Alþingis. Úttektir eru einkum á stjórnsýslu eða fjárhagsmálefnum einstakra ríkisaðila eða fjárlagaliða. Endurskoðun ríkisreiknings með ítarlegri skýrslu er sömuleiðis eitt af stærstu verkefnum Ríkisendurskoðunar. Við bætist síðan eftirlit með fjárreiðum sjóða, félagasamtaka og ákveðnum þáttum í fjármögnun stjórnmálastarfsemi.
Helstu áskoranir
Samhliða breytingum á skipulagi embættisins og starfsháttum hefur á undanförnum árum hefur verið gert átak í jafnréttismálum hjá Ríkisendurskoðun. Konur eru nú ríflega helmingur starfsfólks og hefur hlutfall þeirra í stjórnunarstöðum vaxið í 38%. Ríkisendurskoðun hlaut jafnlaunavottun á árinu 2022.
Ríkisendurskoðun leggur áherslu á eftirlit með því hvort hagkvæmni og skilvirkni sé gætt í meðferð á opinberu fé, svo og hvort fjárframlög ríkisins skili þeim árangri sem að er stefnt. Hefur sú stefna verið mörkuð að fylgjast á komandi árum sérstaklega með stjórnsýslu og fjárhag stærri ríkisaðila. Þetta leiðir til þess að úttektir verða færri en þeim mun mikilvægari og árangursríkari fyrir opinber fjármál og stjórnsýslu.
Staða ríkisfjármála er enn þá viðkvæm eftir tekjutap, útgjaldaauka og skuldaaukningu vegna kórónuveirufaraldursins. Fleiri þættir, s.s. breytingar á aldurssamsetningu þjóðarinnar, munu valda þrýstingi á ríkisfjármálin og gefa verkefnum Ríkisendurskoðunar aukið vægi á komandi árum er ríkisreksturinn leitar aukinnar hagkvæmni og jafnvægis. Glögg og tímanleg upplýsingagjöf um stöðu og horfur ríkisfjármála hefur því áfram mikla þýðingu.
Tækifæri til umbóta
Verkefni á sviði fjárhagsendurskoðunar (að meðtöldum útvistuðum verkefnum) verða áfram meðal þýðingarmestu þátta í starfi Ríkisendurskoðunar. Þar er um að ræða fjárhagsendurskoðun hjá A-hluta stofnunum og fyrirtækjum og félögum í eigu ríkisins í B- og C-hluta ríkisreiknings.
Með skiptingu A-hluta ríkissjóðs í þrennt (A1, A2 og A3) og flutningi ýmissa aðila í A-hlutann, einkum fyrirtækja og sjóða sem áður heyrðu undir B- og C-hluta samkvæmt lögum um opinber fjármál, eykst umfang A-hlutans verulega. Breytt skipting A-hlutans mun hafa áhrif á endurskoðunarstarf embættisins á komandi árum sem mun þá í vaxandi mæli beinast að þeim ríkisaðilum í A-hluta sem máli skipta fyrir ríkisreikning.
Samkvæmt lögum nr. 123/2015 um opinber fjármál (LOF) átti innleiðingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla fyrir opinbera aðila (IPSAS) að ljúka með gerð ríkisreiknings fyrir árið 2019. Það hefur ekki gengið eftir og hefur reikningsskilaráð ríkisins ítrekað heimilað frestun á innleiðingu staðla. Ítarleg tímasett áætlun um innleiðingu fimm frestaðra staðla liggur ekki fyrir og er áframhaldandi frestun því fyrirsjáanleg. Ríkisendurskoðun hefur margsinnis ítrekað að betur hefði þurft að standa að innleiðingunni og hefur efasemdir um að fullri innleiðingu verði lokið í árslok 2024 eins og nú er stefnt að.
Áhættuþættir
Tekin er þóknun fyrir endurskoðun stórra og smárra félaga og sjóða í eigu ríkisins sem falla utan A1-hlutans. Vægi slíkra rekstrartekna (sértekna) hefur aukist á undanförnum árum en þær námu tæpum fimmtungi tekna á árinu 2022. Kröfur um að endurskoðunarverkefni færist reglubundið á milli endurskoðenda gera það að verkum að líklega mun draga úr vægi slíkra verkefna. Jafnframt er ekki talið heppilegt að verkefnaval stofnunarinnar ráðist um of af sértekjumöguleikum hennar. Stefnt er að útvistun stórra endurskoðunarverkefna á komandi misserum og því ljóst að tekjur embættisins munu í vaxandi mæli þurfa að ráðast af framlögum á fjárlögum frekar en sértekjum.
Markmið og mælikvarðar
Markmið |
HM |
Mælikvarðar |
Staða 2022 |
Viðmið 2024 |
Viðmið 2028 |
|||
Skýrari ábyrgð í opinberri þjónustu |
16.6 |
Hlutfall ábendinga sem teknar eru til greina |
>80% |
>80% |
>85% |
|
||
Betri nýting ríkisfjármuna |
16.6 |
Hlutfall ábendinga sem teknar eru til greina |
>80% |
>80% |
>85% |
|
||
Bætt stjórnsýsla |
16.6 |
Hlutfall ábendinga sem teknar eru til greina |
>80% |
>80% |
>85% |
|
||
Efla eftirlit með tekjuöflun ríkisins |
16.6 |
Hlutfall ábendinga sem teknar eru til greina |
>80% |
>80% |
>85% |
|
||
Stefnumótun málefnasviða
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.